Sölusíða Handverksstofunnar opnar

Iðjuþjálfunardeild Hrafnistu í Reykjavík starfrækir vinnustofu fyrir heimilismenn á 4. hæð húsins. Á vinnustofunni býðst heimilismönnum m.a. að vinna handverk að eigin vali. Sölusíðu þessari er ætlað að gefa fólki tækifæri á að skoða handverk heimilismanna og veita upplýsingar um hvernig hægt er að versla og þannig styrkja íbúa og starfsemi vinnustofunnar.

Myndir af völdu handverki má finna undir tenglinum Myndaalbúm
hér að ofan. Handverk íbúanna eru mörg og fjölbreytt og þess vegna eru einungis sýnishorn sett inn á síðuna en oftar en ekki fást þau í fleiri gerðum og stærðum. Þá er um að gera að kíkja við og skoða úrvalið með berum augum. Einnig gefst kostur á að skoða myndir frá félagsstarfi Hrafnistu og starfinu á vinnustofunni.

Verslun Handverksstofunnar er staðsett á 4. hæð Hrafnistu í Reykjavík að Brúnavegi 4. Verslunin er opin frá 9.00-12.00 og 12.30-15.30 alla virka daga og eru allir velkomnir.

Einnig þykir okkur gaman að heyra frá ykkur í gegnum Gestabók síðunnar.


Kær kveðja, Starfsfólk Iðjuþjálfunardeildar Hrafnistu í Reykjavík.


©Thelma Hafþórsdóttir Byrd, júní 2010